Bakgrunnur Verkaskrá Bókaforlagið Blátunga Bókanir Skrifbókin mín Fjölskyldan mín Myndir Uppáhalds... Tenglar Hér er ég!


Uppáhalds...

Skáldverk | Fræðibækur | Tónlist | Bíómyndir | Vísdómur | Orð

 

"Þar eð við ráðum engu nema eigin viðhorfum og viðbrögðum, þá berum við heldur ekki ábyrgð á neinu öðru, enda nægir það verkefni yfirleitt hverjum manni í lífinu." EPIKTET

"Að öðlast hamingju er hið mesta afrek nokkurs manns; hún er lífsviðhorf gætt sköpunargáfu gagnvart sjálfum sér og öllu umhverfi."
LEO BUSCAGLIA

"Sannar manneskjur eru ábyrgar fyrir því sem þær segja og gera, ábyrgar fyrir því hvernig þær umgangast sannleikann, hvernig þær vinna úr reynslu sinni og glæða lífið merkingu og birtu."
PÁLL SKÚLASON

"Kraftaverk eiga sér stöðugt stað allt í kringum okkur; aðeins þeir sem hafa þroskað með sér viðhorf þakklætis taka eftir þeim. - Lífið er list. List er að sjá fegurð og samræmi þar sem aðrir sjá ljótleika og óreiðu."
YOGI AMRIT DESAI

"Listin að lifa, hin erfiðasta, nauðsynlegasta og æðsta list allra lista, er framar öllu listin að hugsa, að hugsa frjálslega, af einlægni, djörfung og alvöru."
SIGURÐUR NORDAL

"Fróðleikur er þekking sem einungis er aflað og safnað. Viska er þekking sem stuðlar að því að maður geti lifað lífinu betur. Fróðleikur, einungis sem fróðleikur, felur ekki í sér neina sérstaka þjálfun vitsmunalegs hæfileika. Viska er fegursti ávöxtur þeirrar þjálfunar."
JOHN DEWEY

"Kennsla er aðeins að kalla á vitni til að staðfesta það sem þú heldur. Þetta er umbreytingaraðferð og gerist ekki eingöngu fyrir tilstilli orða. Sérhverjar aðstæður eru nauðsynlega tækifæri fyrir þig til að miðla til annarra hver þú ert, og hverjir þeir eru þér... Kennslan styrkir eingöngu það sem þú heldur um sjálfa þig. Grundvallarmarkmið hennar er að minnka efasemdirnar í garð sjálfrar þín. Þetta felur ekki í sér að það sjálf sem þú reynir að vernda sé raunverulegt. Hins vegar felur það í sér að það sjálf sem þú heldur að sé raunverulegt er það sem þú miðlar til annarra."
A COURSE IN MIRACLES (lauslega þýtt af DA)

"Það sem maður er byrjar að koma í ljós þegar hann hættir að sýna hvað hann getur. Hæfileikar eru líka skraut, og skraut er jafnframt notað til að fela."
FRIEDRICH NIETZSCHE     

"Möguleikar mínir til að upplifa hugarró, gleði og hamingju eru val sem ég get haft áhrif á. Það eru hugsanir mínar um það sem hendir mig sem ákvarða tilfinningar mínar. Ef ég breyti hugsun minni breytist tilfinning mín að sama skapi. Aðeins ég sjálf ber ábyrgð á hamingju minni og óhamingju. Hvaða stefnu líf mitt tekur er afleiðing af hugsunum mínum um lífið. Þegar ég bregst á neikvæðan hátt við einhverri manneskju er ástæðan minn eiginn vandi og ófullkomleiki. Allt sem ég vel að veita athygli í fari annarrar manneskju er speglun af einhverjum þætti sjálfrar mín."
KAY POLLAK

"Þótt við ferðuðumst heiminn á enda í leit að fegurðinni fyndum við hana ekki ef við bærum hana ekki innra með okkur."
R.W.E.

UPP