1. John Lennon: Imagine. Upphaflega á plötunni Imagine frá 1971. Ég á það á úrvalsdiskinum Lennon Legend frá 1997. Það er miklu fremur ljóðið en lagið sem vekur þær sterku tilfinningar í brjósti mér sem raun ber vitni. Hugleiðingin um það hvernig heimurinn gæti verið. Ímyndaðu þér bara... En breytingar á umheiminum byrja með breytingum á okkur sjálfum, svo það er bara að setja í gang. Einlægur og látlaus flutningur Lennons ítrekar friðar- og einingarboðskap ljóðsins og heildin verður þessi klassíski konfektmoli sem maður velur aftur og aftur að gæða sér á.
2. Cat Stevens: Where do the Children Play. Af diskinum Tea for the Tillerman 1970. Langflestir texta Cat Stevens eru svo innihaldsríkir að þá þyrfti í raun ekki að syngja. En þegar maður hefur einu sinni heyrt tónlistina kemur ekki lengur til greina annað en að fá allan pakkann. Röddin svo kynngimögnuð og gríska hrynjandin svo lífleg. Og saman verður þetta órjúfanleg heild sem gerir að verkum að maður lokar augunum og lætur sig dreyma um hringleikhúsið í Mýkenu, um véfréttina í Delfí, um hofin á Akrópólis, um gullna sanda og blágræna öldu... Og fyrr en varir dansar maður á gullströndinni, gott ef ekki við sjálfan Zorba!
3. Åsa Jinder: Av längtan till dig ("Af þrá til þín"). Af diskinum Folkmusik på svenska 2001. Diskurinn í heild heillaði mig upp úr skónum, ég lagði hamnum og sveif um sali í hrifningarvímu hvert sinn sem ég hlustaði á hann - u.þ.b. fimm sinnum á dag fyrsta árið eftir að hann kom út. Lykilhljóðfærið er fiðla með tökkum (nyckelharpa) sem Åsa leikur á af næmi og fimi. Lög og ljóð eru djúpnæring fyrir sálina. Verðlaunadiskur. Vinsældalistalag. Og að sjálfsögðu sungið í brúðkaupinu okkar Lars. Nema hvað?
4. Egill Ólafsson: Það brennur. Af diskinum Tifa Tifa 1991. Það brennur húsið og ég brenn líka. Til ösku. Lagið og ljóðið í flutningi Egils og Diddúar brenna hjartað mitt þar til tár fegurðarnnar renna niður á brjóst og slökkva logann. A.m.k. kæla hann. Svona hefur það verið frá því ég heyrði það fyrst. Ég vil spila það hátt og leyfa því að hræra upp í tilfinningum mínum - leyfa tilfinningunum að fara þær leiðir sem þær vilja fara hverju sinni. Eitt er víst; eldtungurnar í þessu lagi ná alla leið niður í hjartaræturnar.
5. Louis Armstrong: What a Wonderful World. Ég á lagið á safndiski sem heitir Ástin og er frá 1993 en auðvitað er það mikið eldra. Það á það sameiginlegt með hinum lögunum á listanum mínum að það fyllir mig ólýsanlegri fegurð eða gerir mig óendanlega glaða. Fær mig til að ganga úr hamnum og svífa hamslaus á vængjum sálarinnar um hæðir hamingjunnar. Þolir auk þess að vera spilað aftur og aftur. Það eldist með mér og er þó síungt og heillandi. Rödd Armstrongs svo uppfull af kærleika, af óðinum til lífsins, og ljóðið ástaróður til heimsins. Yndislegt!
6. Lisa Ekdahl. Samnefndur diskur frá 1994. Ómögulegt að nefna eitt lag heldur minnst fjögur og helst öll; Vem vet ("Hver veit"), Öppna upp ditt fönster ("Opnaðu gluggann þinn"), I tveksamhetens tid ("Á tíma óvissunnar") og Jag bara vet ("Ég bara veit það"). Sænsk vísnatónlist. Fyrsti diskur Lisu og með honum sló hún í gegn í Svíþjóð, rúmlega tvítugur krakkinn. Ein með gítarinn sinn. Textarnir eru innihaldsríkir og ótrúlegt að svo ung manneskja hafi skrifað þá. Þetta var fyrsti diskurinn sem hann Lars minn sendi mér frá Svíþjóð áður en ég flutt til hans og "Vem vet" var örlagalagið okkar, að sjálfsögðu sungið við brúðkaupið okkar.
7. Ragnheiður Gröndal: Ást. Af diskinum Ástarljóð (með ýmsum flytjendum) 2003. Ljóðið eitt (eftir Sigurð Nordal) vermir bæði hug og hjarta en lag og túlkun Ragnheiðar gerir að verkum að það verður enn hlýrra og bjartara innanbrjósts.
Ég hef heyrt að þetta lag sé flutt í öðru hverju brúðkaupi á Íslandi. Það kemur mér ekki á óvart. Sjálf læt ég mér nægja að spila það með morgunkaffinu. Samt nær það út í nef og höku, fingur og tær. Ekki minnkar innlifun mín eftir að ég fann bréf undir koddanum frá henni Sunnu dóttur minni þar sem hún hafði breytt texta lagsins í móðurástarjátningu. Og hvað er meira virði fyrir móður? Spyr sú er ekki veit.
8. KK og Ellen: I think of Angels. Af diskinum Gleðifólkið 1995. Lagið er himneskt, ljóðið er sjálfur himinninn og flutningurinn flytur hlustandann þangað upp. Maður fær ekki bara gæsahúð af hlustuninni, heldur líka ókeypis vængi og geislabaug. Það er notalegt að sveima um loftin ljósblá og senda fallegar hugsanir til allra þeirra sem manni þykir vænt um, bæði í áþreifanlega heiminum og hinum óáþreifanlega. Maður lendir síðan mjúklega á öðrum fæti og tekur á sig bara hálfan haminn og svífur brosandi í gegnum afganginn af deginum og inn í kvöldið og nóttina. Áskorun: Hlustaðu á lagið á hverjum morgni!
9. Abba: I have a dream. Af diskinum Voulez-Vous 1979. Draumar eru til alls fyrstir. Maður hugsar um þá, dreymir þá jafnvel, sér þá fyrir sér rætast - og viti menn, oft rætast þeir! Hugljúf melódía, ljóðið fullt af bjartsýni á lífið og tilveruna.
Ég hef alltaf verið hrifin af Abba, einmitt fyrir þá jákvæðni og sönggleði sem skín úr mörgum laganna. Ég man þá tíð að mér var sendur tónninn þegar ég var unglingur á Íslandi af því ég hreifst af Abba. Það var nefnilega ekki í tísku. Þessi íslenska einstefna er mér enn ljósari nú en þá, enda fær maður annað sjónarhorn á hlutina úr fjarska. Krafa íslensku þjóðarsálarinnar um að allir eigi að vera eins og enginn eigi að sýna nein tilþrif í þá átt að reyna að vera öðruvísi, er merkilega lífseig. En... ég stóð og féll með Abba - og geri það enn. Er þessutan stolt af því - ekki síst núna þegar ég er flutt til heimalands hljómsveitarinnar.
10. Nazareth: Love hurts. Kom fyrst út á plötunni Hair of the Dog 1975. Eins og sést á þessum lista er ég ekki mikill rokkaðdáandi. Þetta lag elska ég þó - þrátt fyrir sársaukann sem textinn boðar. Fyrir mér er útsetningin og flutningurinn rokk en sjálft lagið er undurljúf ballaða sem liðast eins og reykur inn í merg og bein og bítur sig fast. Ég hlusta helst á það þegar ég er ein heima, oftar en ekki þegar stormar geysa í tilfinningalífinu, og tek hjartanlega undir með söngvaranum. Þegar ég hef öskrað mig hása held ég áfram að lifa, vitandi sem er að ástin tekur á sig ýmsar myndir og ein þeirra er sársaukinn og önnur gleðin, ein er grátur og önnur hlátur...
Þú getur farið inn á www.allmusic.com til að afla þér upplýsinga um þessi lög og raunar öll önnur...
UPP